Erlent

Sýndu myndskeið af Castro í sjónvarpi

fidel Castro ásamt Nong Duc Manh. leiðtoga Kommúnistaflokksins í Víetnam.
fidel Castro ásamt Nong Duc Manh. leiðtoga Kommúnistaflokksins í Víetnam. MYND/AP

Kúbversk sjónvarpsstöð birti í gær myndskeið af Fidel Castro, forseta Kúbu. Þetta eru fyrstu myndirnar sem birtar eru af leiðtoganum aldna í fjóra mánuði. Myndirnar voru teknar um helgina og eru hluti af þætti um leiðtogann sem verður á sjónvarpsstöðinni í kvöld.

Eftir því sem erlendir miðlar greina frá virðist hann hressari en undanfarna mánuði. Hann sést slá á létta strengi með leiðtoga Kommúnistaflokksins í Víetnam sem heimsótti Castro um helgina.

Castro hefur ekki komið fram opinberlega í nærri ár eftir að hann veiktist alvarlega og hefur Raul bróðir hans haldið um stjórnartaumana síðan. Það mun vera ríkisleyndarmál á Kúbu hvað hrjáir forsetann en bandarísk stjórnvöld hafa leitt að því líkur að hann sé með krabbamein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×