Erlent

Ríkiseinokun á áfengisinnflutningi óheimil í Svíþjóð

Björn Gíslason skrifar
MYND/GVA

Evrópusdómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að sænskum stjórnvöldum sé óheimilt að banna einstaklingum að flytja áfengi sjálfir inn til landsins sem keypt er á Netinu. Úrskurður þessa efnis féll í Lúxemborg í morgun.

Segir dómstóllinn að bannið stríði gegn ákvæðum Evrópusambandsins um frjálst vöruflæði innan sambandsins. Sænsk stjórnvöld selja líkt og íslensk áfengi í sérstökum verslunum ríkisins sem nefnast Systembolaget. Hafa þau ekki viljað leyfa frjálsan innflutning á áfengi þar sem það stríði gegn lýðheilsumarkmiðum sænskra stjórnvalda. Á þau rök féllst dómurinn ekki í morgun.

Það var sænskur maður að nafni Klas Rosengren sem leitaði til Evrópudómstólsins eftir að tollurinn hafð gert upptækt spænskt vín sem hann hafði pantað í gegnum danska heimasíðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×