Erlent

Nígerísk stjórnvöld í mál við Pfizer

Nígerísk stjórnvöld hafa höfðað mál á hendur bandaríska lyfjarisanum Pfizer vegna meintra ólöglegra tilrauna með lyf gegn heilahimnubólgu.

Segja stjórnvöld í Nígeríu að lyfjafyrirtækið hafi gert tilraunir með lyfið Trovan án þess að leita eftir leyfi hjá yfirvöldum og að börn hafi veikst og jafnvel látist af völdum aukaverkana lyfsins. Fara stjórnvöld fram á sjö milljarða dollara, jafnvirði un 420 milljarða króna, í bætur fyrir fjölskyldur barnanna.

Fram kemur á vef BBC að tilraunirnar hafi verið gerðar í Kano-héraði árið 1996 þar sem heilahimnubólga herjaði á börn og hafa yfirvöld í héraðinu þegar höfðað mál á hendur þessu stærsta lyfjafyrirtæki heims vegna tilraunanna.

Forsvarsmenn Pfizer neita hins vegar öllum sakargiftum og segjast hafa gert tilraunirnar í samræmi við nígerísk og alþjóðleg lög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×