Erlent

Vill láta reyna á sekt Poulsens

Fótboltabulla ræðst á dómarann í leik Dana og Svía skömmu eftir að Poulsen hafði verið vísað af velli fyrir að kýla andstæðinginn sinn.
Fótboltabulla ræðst á dómarann í leik Dana og Svía skömmu eftir að Poulsen hafði verið vísað af velli fyrir að kýla andstæðinginn sinn. MYND/AP

Christian Poulsen, leikmaður danska landsliðsins í knattspyrnu, var í gær kærður til lögreglu fyrir ofbeldi. Það gerði nemandi í Árósum sem vill að dómstólar skeri úr um það hvar mörkin liggja inni á knattspyrnuvellinum.

Poulsen komst í heimsfréttirnar um helgina þegar hann kýldi sænskan landsliðsmann í magann í sögulegri viðureign Dana og Svía á Parken. Honum var vísað út af fyrir uppátækið. Hann var hins vegar ekki kærður líkt og fótboltabullan sem hljóp inn á völlinn og réðst á dómarann.

Fram kemur á vef TV2 í Danmörku að ólíklegt sé að kæra nemans leiði til sakfellingar þar sem átök séu hluti af knattspyrnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×