Erlent

ETA bindur enda á vopnahlé sitt

MYND/AP

Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, hyggst binda enda á rúmlega eins árs vopnahlé á morgun eftir því sem fram kemur í baskneska dagblaðinu Berria í dag.

Þar segir að lágmarksskilyrði fyrir friðarviðræðum við stjórnvöld á Spáni séu ekki fyrir hendi og að yfirvöld hafi beitt félaga í ETA ofsóknum og pyntingum. ETA lýsti yfir vopnahléi í mars í fyrra en lét þó til skarar skríða með sprengjuárás á flugvelli í Madríd í desember í fyrra. Í kjölfarið hættu stjórnvöld öllum viðræðum við samtökin. Hugsanlegt er talið að samtökin láti til skarar skríða einhvers staðar á Spáni á næstu dögum.

Yfir 800 manns hafa látist í fjögurra áratuga blóðugri baráttu ETA fyrir sjálfstæði Baskalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×