Erlent

Sex látnir eftir lestarslys í Ástralíu

Átta létust og tólf slösuðust alvarlega þegar farþegalest og flutningabíll rákust saman í norðvesturhluta Viktoríuríkis í Ástralíu í morgun. Fjörutíu til viðbótar hlutu minni háttar áverka í árekstrinum en við hann fór farþegalestin út af sporunum.

Slysið varð á mótum vegar og lestarteina og er haft eftir sjónarvotti að bíllinn hafi nærri klippt einn lestarvagnannana í tvennt. Enn er verið að leita að fólki í lestinni en ekki liggur fyrir hvers vegna slysið varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×