Danir sem flytja til útlanda gera nákvæmlega það sama og innflytjendur í Danmörku eru gagnrýndir fyrir að gera þar. Þeir halda sig útaf fyrir sig. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem sagt er frá í danska blaðinu 24timer.
Breskur félagsfræðingu sem gerði rannsóknina segir sláandi hve stór hluti þeirra þrjátíu og fimm þúsund Dana sem búi á Spáni sé úr tengslum við samfélagið sem þeir búa í. Aðeins fimm prósent dönsku innflytjendanna tala spænsku svo dæmi sé tekið og fæstir taka þátt í sveitarstjórnarkosningum þótt þeir eigi völ á.
Önnur nýleg rannsókn hefur ennfremur sýnt fram á, að níu af hverjum tíu dönum sem búa erlendis líta enn á sig sem Dani, óháð því hve lengi þeir hafa búið á erlendri grundu. Raunar segist helmingur aðpurðra finna til meiri þjóðerniskenndar nú en þegar þeir bjuggu í Danmörku.