Erlent

Obama fær vernd lífvarðarsveitar forsetans

Mynd/AP

Barack Obama, sem sækist eftir að vera frambjóðandi demókrata í bandarísku forsetakosningunum hefur verið settur undir verndarvæng lífvarðarsveitar forsetans. Ástæður þess að frambjóðandinn fær þessa vernd eru ekki ljósar en bón þess efnis mun hafa komið úr hans eigin herbúðum. Það var Michael Chertoff, yfirmaður heimavarnarráðuneytisins bandaríska sem gaf út heimild þess efnis að Obama nyti verndar með þessum hætti.

 

Hillary Clinton, aðalkeppinautur Obama í forskosningunum, nýtur þegar verndar sveitarinnar, þar sem hún er fyrrverandi forsetafrú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×