Sögulegt samkomulag á Norður-Írlandi 26. mars 2007 11:22
Ian Paisley leiðtogi Sambandsflokksins og Gerry Adams leiðtogi Sinn Fein hafa komist að samkomulagi um myndun heimastjórnar á Norður-Írlandi. Stjórnin tekur til starfa 8. maí. Þetta er sögulegt samkomulag en þar til í dag höfðu leiðtogar Sambandsflokksins og Sinn Fein aldrei fundað. Þeir sögðu á blaðamannafundi eftir undirritun samkomulagsins að það væri gert með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi og að friður væri kominn til að vera á Norður-Írlandi. Paisley hafði áður lagt blátt bann við viðræðum við Sinn Fein. Seinna í dag mun héraðsþing Norður-Írlands koma saman í Stormont-kastala í Belfast og velja ráðherra í heimastjórnina. Það þótti til marks um að enn er grunnt á því góða á milli leiðtoganna að þeir tókust ekki í hendur að blaðamannafundinum loknum. Hreyfingar þeirra bárust á banaspjótum áratugum saman og alls fórust minnst 3.600 manns í 30 ára átökum milli mótmælenda og kaþólikka á Norður-Írlandi. Ekki tókst að mynda heimastjórn á Norður-Írlandi eftir kosningarnar fyrir fjórum árum og kom þingið sem þá var kjörið fyrst saman í fyrravor. Reglur segja til um að þátttöku fjögurra stærstu flokkanna þurfi til að mynda megi heimastjórn. Tony Blair forsætisráðherra Bretlands tekur samstarfi Sambandsflokksins og Sinn Fein á Norður-Írlandi fagnandi. „Þetta er mikilvægur dagur fyrir norður-írsku þjóðina. Í vissum skilningi er dagurinn í dag það sem við höfum verið að búa okkur undir síðustu tíu árin", sagði Blair. „Norður-Írar hafa sagst vilja frið og valdreifingu og betri samvinnu og stjórnmálamenn eru nú að verða við þeirri beiðni", sagði hann ennfremur. Smelltu hér til að sjá yfirlýsingar Paisley og Adams á Veftíví Vísis.
Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira