Erlent

Bush-mótmæli í Mexíkó

AP

Hart hefur verið mótmælt í morgun utan við sendiráð Bandaríkjanna í Mexíkóborg, en þar er George Bush að ljúka fimm landa ferð sinni um Mið- og Suður-Ameríku. Mótmælendur hafa brennt fána og kastað grjóti í átt að lögreglumönnum sem gæta sendiráðsins.

Táragas var notað til að dreifa mannfjöldanum en þónokkrir hafa slasast, bæði mótmælendur og lögreglumenn. Bush heldur heim í dag en í gær átti hann fund með Felipe Calderon forseta Mexíkó þar sem Bush lofaði umbótum á innflytjendalöggjöf Bandaríkjanna.

Í dag funda þeir starfsbræður aftur og er búist við að fyrsta mál á dagskrá verði baráttan við eiturlyfjasmygl. Bush hefur á ferð sinni heimsótt Brasilíu, Úrúgvæ, Kólumbíu og Gvatemala og alls staðar hefur honum verið tekið með æði misjöfnum hætti þó hann hafi valið lönd þar sem stjórnvöld eru Bandaríkjunum hliðholl.

Á sama tíma hefur Hugo Chavez forseti Venesúela og erkióvinur Bush ferðast um lönd sem honum eru hliðholl og haldið fjölmenna útifundi. Þar hefur hann sagst vera í baráttu gegn því sem hann kallar „Bandaríska heimsveldið". Chavez gerði sitt síðasta stopp á Haítí þar sem hann lofaði landinu 14 þúsund tunnum af hráolíu á dag í efnahagsaðstoð. Áður hafði Chavez komið við í Argentínu, Bólivíu, Nicaragua og Jamaíku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×