Erlent

Helltu sýru á skipið

Paul Watson, einn liðsmanna Sea Shepard
Paul Watson, einn liðsmanna Sea Shepard

Stjórnvöld í Japan fordæma aðgerðir hvalafriðunarsinna sem helltu sýru á dekk japansks hvalveiðiskips. Tveir úr hvalfriðunarsamtökunum Sea Shepard týndust á haf út eftir átökin sem áttu sér stað í ísköldum sjó við Suðurskautslandið. Japanskir sjómenn fundu þá síðan skömmu síðar.

Sea Shepard-liðunum tókst að hella sex lítrum af sýru á dekkið áður en þeir voru flæmdir á brott. Sýran var ekki eitruð en gaf af sér óþef sem truflaði vinnu japönsku sjómannana sem voru við að skera hval sem þeir höfðu veitt.

Japanir ráðgera veiðar á 850 hrefnum í vísindaskyni á þessu ári en bæði Greenpeace og Sea Shepard hafa heitið að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva veiðarnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×