Joey Barton fékk þurrar móttökur á fyrstu æfingu 6. febrúar 2007 19:43 Joey Barton fékk ekkert knús á fyrstu æfingu sinni með enska landsliðinu NordicPhotos/GettyImages
Miðjumaðurinn Joey Barton fékk fremur þurrar móttökur þegar hann mætti á sína fyrstu landsliðsæfingu á dögunum ef marka má grein í breska blaðinu Sun í dag. Barton gagnrýndi þá Frank Lampard og Steven Gerrard harðlega fyrir frammistöðu sína á HM í sumar og fékk því ekki sérstaklega hlýjar móttökur frá þeim félögum. Heimildir herma að Barton hafi verið nokkuð sér á báti þegar hann mætti á fyrstu æfingu sína hjá enska landsliðinu en hann fann þar fljótlega félaga sína Micah Richards og Shaun Wright-Phillips. Ísinn bráðnaði þó fljótlega og Barton var farinn að ræða við þá Gerrard og Lampard fljótlega. Gerrard ber fyrirliðabandið í leiknum gegn Spánverjum annað kvöld og þó hann viðurkenni að Barton hafi farið yfir strikið í ummælum sínum um enska landsliðið í sumar, segir hann að það komi ekki til með að skemma fyrir samstarfi þeirra hjá landsliðinu. "Steve McClaren er að reyna að hrista upp í liðinu og ég held að Joey Barton sé einmitt leikmaður til þess. Ég, Frank og Joey munum eflaust ræða saman í góðu tómi fljótlega og fara yfir þessa hluti og ég er viss um að við munum gleyma þessu strax. Ég þekki Joey vel því við erum úr sama hverfi og ég glotti nú bara með sjálfum mér þegar ég sá að hann var valinn í landsliðið," sagði Gerrard og vísaði til ummæla Barton í sumar þegar hann sagði að Gerrard og Lampard gætu ekki spilað saman í enska landsliðinu, hefðu verið lélegir á HM og síðan vælt yfir því í bókum sínum sem þeir gáfu út eftir HM. "Joey er svipaður og ég þegar hann veitir viðtöl, því hann segir það sem hann er að hugsa. Hann er hreinskilinn maður, en við segjum stundum hluti sem við sjáum eftir síðar. Hann á eftir að læra af þessu," sagði fyrirliðinn, sem fyrr um daginn grínaðist með það að hann væri að spá í að gefa Barton eintak af bókinni sinni.
Enski boltinn Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Körfubolti Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Formúla 1 Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Handbolti Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti Fyrstu peningaverðlaunin á ferlinum Sport Fleiri fréttir Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Sjá meira