Enski boltinn

Mourinho hefur miklar áhyggjur af Cole

NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur miklar áhyggjur af hnémeiðslunum sem Ashley Cole varð fyrir í leiknu gegn Blackburn í gær, en Cole lagðist skyndilega í grasið í miklum sársauka án þess að nokkur kæmi við hann. Hann gengur undir ítarlega læknisskoðun í dag.

"Ég hef áhyggjur af hnénu á honum því hann getur ekki einu sinni gengið - svo þetta hlýtur að vera eitthvað alvarlegt. Meiðsli af þessari tegund enda yfirleitt með uppskurði, svo ég er frekar svartsýnn fyrir hönd liðsins," sagði Mourinho, sem getur þó huggað sig við að hafa varamann í vinstri bakvarðarstöðuna sem líklega kæmist í flest önnur lið í úrvalsdeildinni - Wayne Bridge.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×