Enski boltinn

Diaby í liði Arsenal í fyrsta sinn í 8 mánuði

NordicPhotos/GettyImages

Nú er fyrri undanúrslitaleikur Tottenham og Arsenal í enska deildarbikarnum að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Abu Diaby er kominn í byrjunarlið Arsenal eftir átta mánaða fjarveru vegna meiðsla og þeir Didier Zokora og Aaron Lennon koma inn í lið Tottenham á ný.

Fresta þurfti leiknum um stundarfjórðung eftir að áhorfendum gekk illa að koma sér inn á völlinn, en vallarstarfsmenn vilja eflaust hafa vaðið fyrir neðan sig þegar um er að ræða grannaslag erkifjendanna í norðurhluta Lundúna.

Arsenal teflir fram ungu og óreyndu liði í leiknum en Tottenham er nánast með sitt sterkasta lið í kvöld. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×