Enski boltinn

Shevchenko hættur að ræða við fjölmiðla

NordicPhotos/GettyImages
Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko gaf það út á heimasíðu sinni í kvöld að hann ætlaði framvegis að sniðganga alla fréttamenn á Englandi í kjölfar þess að bresku blöðin hafi birt eftir hann fjölda tilvitnana sem væru úr lausu lofti gripnar.

Shevchenko segist framvegis aðeins ætla að tjá sig á blaðamannafundum beintengdum Chelsea og svo á heimasíðu sinni. "Fjölmiðlar hafa vitnað í mig hvað eftir annað undanfarið og ég hef ekki hugmynd um hvaðan þessi ummæli koma. Þetta er farið að hafa áhrif á mig og fjölskyldu mína og því ætla ég framvegis aðeins að tjá mig hér á síðunni minni og á blaðamannafundum tengdum Chelsea," sagði framherjinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×