Ferguson ánægður með Skandinavíumennina 7. janúar 2007 17:37 Ole Gunnar Solskjær NordicPhotos/GettyImages
Sir Alex Ferguson hrósaði Skandinavíumönnunum tveimur í framlínu Man Utd í hástert í dag eftir að þeir tryggðu liðinu sigur á Aston Villa með tveimur góðum mörkum. Henrik Larsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í sínum fyrsta leik og Ole Gunnar Solskjær innsiglaði sigurinn í blálokin með dæmigerðu marki fyrir þennan markheppna framherja. "Ég beið spenntur eftir að sjá hvernig Larsson kæmi út í leik því hann var búinn að vera frábær á æfingum. Ég treysti honum fullkomlega til að spila þennan leik og það kom heldur betur á daginn. Hann var sjóðandi heitur á síðasta þriðjungi vallarins, skapaði mikla hættu og hefði með öllu geta skorað fleiri mörk. Ég get ekki lýst því hvað ég er ánægður með hann," sagði Ferguson og skildi að sjálfssögðu eftir sneið handa Norðmanninum Ole Gunnar Soskjær. "Ole er búinn að vera ótrúlegur í vetur. Ég sá ekki markið hans því það hljóp einhver fyrir mig, en ég frétti að boltinn hefði lekið inn undir markvörðinn. Ole er einstaklega góður í að koma skotum sínum á rammann og hefur oftar en ekki skorað úr þröngum færum, svo það kemur mér ekkert á óvart. Ég held samt að enginn hjá félaginu hefði geta trúað því að hann ætti eftir að vera kominn með 9 mörk á þessum tímapunkti á leiktíðinni og það segir sína sögu um hve frábær leikmaður hann er," sagði Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Lést í miðjum leik Fótbolti „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Íslenski boltinn „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Ensk stórlið, Stólar í Garðabæ og Besta deild kvenna Sport „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Fleiri fréttir Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk „Hann var grátandi í hálfleik“ „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ Sjá meira