Enski boltinn

Kærasta Crouch dansar brúðudansinn

Vélmennið og Brúðan. Crouch og kærastan fara í danskeppni í frítíma sínum
Vélmennið og Brúðan. Crouch og kærastan fara í danskeppni í frítíma sínum

Enski landsliðsmaðurinn Peter Crouch hjá Liverpool sló í gegn í fyrra þegar hann dansaði vélmennadansinn þegar hann fagnaði marki gegn Ungverjum. Kærastan hans svaraði þessu með því að dansa brúðudansinn.

Crouch sló rækilega í gegn með því að taka róbótinn, en hann var fundinn upp í partíi hjá David Beckham á sínum tíma. Kærastan hans Crouch, hin þokkafulla Abbey Clancy, segist sjálf hafa fundið upp svar við vélmennadansinum - nefnilega brúðudansinn.

"Okkur finnst skemmtilegast að fara út og dansa þegar við eigum frí. Ég elska þegar hann tekur "vélmennið" - en sjálf tek ég "brúðuna," sagði Clancy. Hún segist vita upp á hár hvers karlmenn þarfnist og býr því alltaf til kjötkássu þegar hann nær að skora.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×