Erlent

Sigur Sarkozy minni en spár gerðu ráð fyrir

Flokkur Sarkozy fékk 340 þingsæti.
Flokkur Sarkozy fékk 340 þingsæti. MYND/AFP

Hægri flokkur Nicolasar Sarkozy, forseta Frakklands, vann stóran sigur í annarri umferð frönsku þingkosninganna samkvæmt útgönguspám. Sigurinn er þó ekki eins stór eins fyrstu spár höfðu gert ráð fyrir. Upphaflega var talið að flokkur forsetans fengi meira en fjögur hundruð sæti en útgönguspár sýna að hann fær um 340 sæti af 577.

Samkvæmt útgönguspám fær hægriflokkur Sarkozy og bandamanna hans á hægri væng franskra stjórnvalda samanlagt um 359 sæti. Sósíalistar fá um 232 þingsæti.

Verði úrslitin þessi er ljóst að þau vonbrigði fyrir Sarkozy sem hafði reiknað með stærri sigri. Hins vegar ætti meirihlutinn að vera nægur til þess að forsetinn geti náð í gegn yfirlýstum umbætum á skatta- og vinnulöggjöf landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×