Erlent

Samið um lausn Alan Johnston

Mannræningjarnir sem hafa haft Alan Johnston, fréttamann BBC, í haldi á Gaza tilkynntu í gær að þeir myndu sleppa honum innan sólarhrings eftir samningaviðræður við Hamas.



Stuttu áður hafði Hamas heitið því að tryggja lausn Johnstons, sem virðist vera til marks um viðleitni samtakanna til að fá ekki alþjóðasamfélagið upp á móti sér. Hamas þykir með þessu hafa sent skilaboð til herskárra hópa um að þau hyggist koma á reglu á svæðinu.



Johnston hefur verið í haldi í þrjá mánuði, lengur en nokkur annar vestrænn fréttamaður sem hefur verið rænt á Gaza.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×