Erlent

Palestína klofin milli Hamas og Fatah

Liðsmenn Fatah stóðu við hlið blaktandi fána Palestínu og fordæmdu Hamas á Vesturbakkanum í gær.
Liðsmenn Fatah stóðu við hlið blaktandi fána Palestínu og fordæmdu Hamas á Vesturbakkanum í gær. nordicphotos/afp

 Eftir atburði síðustu fimm daga er Palestína klofin í tvennt. Gaza-ströndin og Vesturbakkinn, sem liggja sitthvoru megin við Ísrael, eru nú undir stjórn sitthvorrar palestínsku fylkingarinnar þar sem Hamas stýrir Gaza-ströndinni og Fatah fer með völd á Vesturbakkanum.



Mahmoud Abbas, forseti Palestínu og leiðtogi Fatah, skipaði í gær fjármálaráðherra Palestínu, hinn óháða Salam Fayyad, forsætisráðherra í stað Ismail Haniyeh, leiðtoga Hamas, sem hann rak daginn áður ásamt ríkisstjórninni sem fylkingarnar mynduðu fyrir þremur mánuðum.

Haniyeh neitar hins vegar að láta af embætti og segir stöðu ástands slíka að ekki sé hægt að taka einhliða ákvarðanir.



Abbas lýsti yfir neyðarástandi eftir að ljóst var að Hamas hafði náð yfirráðum á Gaza og hyggst stjórna með forsetatilskipunum þar til aðstæður bjóði upp á snemmbúnar kosningar. Tilskipun Abbas um myndun nýrrar ríkisstjórnar mun ekki breyta því að Hamas hefur stjórn á Gaza en gæti styrkt frekar völd Fatah yfir Vesturbakkanum og lagt grundvöll að tveimur aðskildum palestínskum stjórnvöldum.

Yfir níutíu manns létust í átökunum á Gaza síðustu daga og tugir særðust.


Tengdar fréttir

Samið um lausn Alan Johnston

Mannræningjarnir sem hafa haft Alan Johnston, fréttamann BBC, í haldi á Gaza tilkynntu í gær að þeir myndu sleppa honum innan sólarhrings eftir samningaviðræður við Hamas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×