Erlent

Stal skjaldböku og pyntaði

Karlmaður í borginni Ventura í Kaliforníuríki hefur verið handtekinn grunaður um að hafa stolið 20 kílóa skjaldböku úr bakgarði eigenda sinna og pyntað hana grimmilega.



Skjaldbakan, sem ber nafnið Bob, hvarf úr garðinum 7. júlí, og að sögn lögreglu var hún limlest af einhverjum sem reyndi að skera í hálsinn á henni og fjarlægja af henni fæturna. Að því er fram kemur í Los Angeles Times er skjaldbakan á batavegi eftir dvöl í endurhæfingarstöð fyrir dýr. „Það er gott að vita af svona mönnum á bak við lás og slá,“ sagði lögregla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×