Erlent

Æfðu menn í hryðjuverkum

Mennirnir þrír Ítalska lögreglan sýnir myndir af Marokkómönnunum þremur á tölvuskjá.
Mennirnir þrír Ítalska lögreglan sýnir myndir af Marokkómönnunum þremur á tölvuskjá. fréttablaðið/ap

Ítalska lögreglan handtók þrjá Marokkómenn í Perugia í gær vegna gruns um að þeir hafi ætlað að fremja hryðjuverk.



Þremenningarnir hafa notað Ponte Felcino-moskuna í miðbæ borgarinnar til að þjálfa menn í bardagalist, kenna þeim sprengju- og eiturgerð og hvernig eigi að stýra Boeing 747-þotum. Ítalska lögreglan hefur unnið að rannsókn málsins í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×