Erlent

Engar ákærur lagðar fram

Levy lávarður
Levy lávarður

Enginn af aðstoðarmönnum Tonys Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, verður ákærður í kjölfar lögreglurannsóknar á fjármálum flokksins. Grunur hafði vaknað um að flokkurinn hafi útvegað auðmönnum lávarðatign í skiptum fyrir fjárstuðning í flokkssjóðina.



Carmen Dowd aðalsaksóknari sagði ekki hafa fundist nægar sannanir til að sækja neinn hinna grunuðu til saka. Lögreglan hefur rannsakað málið í fimmtán mánuði.



„Þessari rannsókn lauk eins og ég bjóst alltaf við,“ sagði Tony Blair í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í fyrradag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×