Erlent

Aðgerðin heppnaðist vel

george w. bush
george w. bush

Fimm separ voru fjarlægðir úr ristli George W. Bush Bandaríkjaforseta í aðgerð sem hann gekkst undir í gær. Separnir fundust við hefðbundna krabbameinsskoðun sem var framkvæmd í bústað forsetans í Camp David.



Separnir verða rannsakaðir til að skera úr um hvort krabbamein finnist í þeim en afar ólíklegt þykir að sú verði raunin vegna þess hversu litlir þeir voru.



Á meðan Bush var undir læknishöndum, eða í rúmar tvær klukkustundir, fór varaforsetinn Dick Cheney með forsetavaldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×