Erlent

Fyrsti kvenforseti Indlands

Pratibha Patil sést hér á milli Soníu Gandhi, leiðtoga Þingflokksins, og forsætisráðherrans, Manmohan Singh. Sigur Patil er talinn táknrænn fyrir þær hundruð milljóna kvenna sem búa við mismunun á Indlandi.
fréttablaðið/ap
Pratibha Patil sést hér á milli Soníu Gandhi, leiðtoga Þingflokksins, og forsætisráðherrans, Manmohan Singh. Sigur Patil er talinn táknrænn fyrir þær hundruð milljóna kvenna sem búa við mismunun á Indlandi. fréttablaðið/ap

Pratibha Patil var kjörin forseti Indlands í gær. Hún er fyrsta konan til að gegna forsetaembættinu á Indlandi.



Forseti Indlands hefur ekki mikil völd og er embættið fyrst og fremst talið táknrænt. Með kosningu Patils er þeim indverska sið haldið við að kjósa forseta sem kemur úr minnihlutahópi sem talið er að eigi undir högg að sækja. Þrátt fyrir að margar konur hafi verið í valdastöðum á Indlandi, til dæmis Indira Gandhi, sem fyrst kvenna var kosin forsætisráðherra Indlands árið 1966, og Sonía Gandhi, sem er núverandi leiðtogi Þingflokksins, stærsta stjórnmálaflokks Indlands, þá er mismunun gegn konum útbreidd. Til dæmis er talið að um 10 milljón meybörn hafi verið borin út í landinu á síðustu tuttugu árum.



Patil fékk 66 prósent atkvæðanna í kosningunum meðal þingmanna á indverska þinginu. Hún naut stuðnings Þingflokksins og pólitískra samherja hans. Hún sigraði frambjóðanda stjórnarandstöðunnar, varaforsetann Bhairon Singh Shekhawat, í kosningunum.

Patil er 72 ára gömul og menntaði sig í lögfræði. Hún mun sverja embættiseið sem þrettándi forseti Indlands hinn 25. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×