Erlent

90 hafa látist í Afghanistan síðustu daga

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar

Meira en 90 manns hafa látist í aðgerðum Nató og Bandaríkjamanna í Afghanistan síðustu tíu daga. Forseti landsins fordæmir árásirnar og hvetur til samráðs svo koma megi í veg fyrir að aðgerðirnar kosti almenna borgara lífið.Um 60 talibanskir hermenn létust auk um 30 almennra borgarara í stærstu aðgerðum gegn talíbönum í Pakistan síðustu sex mánuði.

Heimildarmenn NATO segja að hermenn þess og Bandaríkjanna hafi gert gagnárásir á afganskar sveitir í gær á Bermelsvæðinu í fjallendi Pakistan, eftir að talíbanar ógnuðu og skutu á bandarískar flugvélar.

Pakistanski herinn sagði að að eldflaug hefði lent innan pakistönsku landamæranna, á húsi óbreyttra borgara og banað níu manns, fimm körlum, þremur konum og einu barni. Þar fyrir utan hefðu fjölmargir óbreyttir borgarar særst.

Talsmaður Nató hefur farið fram á rannsókn á framkvæmd loftárásar sem kostaði 25 almenna borgara lífið.

Talsmaður Bandaríkjahers sagði mögulegt að herinn hefði skotið vopnum innan landamæra Pakistan, en það hefði þá verið óviljaverk. Árásum hefði ekki verið beint gegn pakistönskum borgurum.

Hamid Karzai fordæmdi aðgerðir Nató og Bandaríkjamanna og sagði mikinn skort á samvinnu þeirra við yfirvöld í landinu. Hann varaði við því að reynt væri að yfirfæra vestrænar aðferðir og gildi í Afghanistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×