Jónaðar treyjur Portsmouth virka 6. desember 2007 14:21 Portsmouth-menn eru flottir í tauinu NordicPhotos/GettyImages
Enska úrvalsdeildarliðið Portsmouth hefur staðið sig vonum framar í haust og margir vilja meina að það sé ekki síst að þakka framúrstefnulegum fatnaði liðsins. Portsmouth klæðist þannig jónuðum æfingafatnaði sem sló í gegn á HM í ruðningi á þessu ári. Þar klæddist landslið Suður-Afríku slíkum fatnaði og vann nokkuð óvæntan sigur í keppninni. Markaðsfulltrúar hafa kallað treyjurnar "stera í formi fatnaðar" því það þykir vísindalega sannað að treyjurnar skili leikmönnum meira þoli, auknum krafti og þar með bættri frammistöðu á knattspyrnuvellinum. Án þess að fara út í of flókna efnafræði virkar fatnaðurinn þannig að neikvætt hlaðnar jónir í fatnaðinum hlaðast inn í líkamann og auka þannig blóðflæði. Aukið blóðflæði skilar þannig meira súrefni í vöðvana og bætir kraft og úthald. Þá losnar mjólkursýra einnig hraðar úr líkamanum vegna hins aukna blóðflæðis. Þessar jónuðu treyjur eru byggðar á gömlum japönskum fræðum sem voru vísindalega þróuð í kommúnistaríkjum Evrópu á millistríðsárunum. Það var svo endanlega amerískt fyrirtæki sem kom tækninni á kortið og hóf að hanna búnað fyrir sundmenn. Framleiðslan er kölluð IonX og hefur valdið fjaðrafoki í ruðningsheiminum þar sem nokkrar þjóðir fóru fram á að bann yrði lagt á notkun fatnaðarins þar sem hann væri ólöglegur. Lyfjaeftirlitið rannsakaði málið en gat ekki fundið neitt í fatnaðinum sem bryti í bága við reglur. Forráðamenn Portsmouth hafa nú gert samning við framleiðanda IoneX og vonast til að geta haldið einkaleyfi á notkun hans sem lengst - því rannsóknir sýna að efnið virki í raun og veru. Það þótti Portsmouth-mönnum endanlega sannað þegar gamli skröggurinn Harry Redknapp féllst á að samþykkja að líklega væri búningurinn að blása lífi í leikmenn hans. Daily Mail greindi frá þessu.
Enski boltinn Tengdar fréttir Hermann ánægður með jónafötin Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth, segir að fatnaðurinn sem leikmenn Portsmouth klæðist hjálpi þeim sannarlega eins og bent var á í grein í Daily Mail í dag. 6. desember 2007 14:56 Mest lesið Með 40 blöðrur á fótunum og sefur ekki fyrir verkjum: „Brýtur mann á allan hátt“ Sport „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Íslenski boltinn Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Handbolti Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Fótbolti Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Fótbolti Sakaðir um ólöglegar upptökur Enski boltinn Rasískur bolur fyrir kappakstur Trump tekinn úr umferð Sport Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ Körfubolti Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Fleiri fréttir Í straff vegna skilaboða til ólögráða stúlku Sakaðir um ólöglegar upptökur Neyðast til að styðja liðið sem þeir hata Carrick segist bíða rólegur Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Sjá meira
Hermann ánægður með jónafötin Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth, segir að fatnaðurinn sem leikmenn Portsmouth klæðist hjálpi þeim sannarlega eins og bent var á í grein í Daily Mail í dag. 6. desember 2007 14:56