Erlent

Sarkozy fær ótvírætt umboð til umbóta

Francois Fillon forsætisráðherra var settur í embætti af Sarkozy forseta í gær.
Francois Fillon forsætisráðherra var settur í embætti af Sarkozy forseta í gær. MYND/AP

Þegar Frakkar flykkjast á ströndina í sumar munu þingmenn sem náðu kjöri í síðari umferð þingkosninganna í landinu um helgina, flestir úr íhaldsflokki Nicolas Sarkozy forseta, þurfa að sitja sveittir í París við að vinna að lagabreytingum sem miða að því að hrinda í framkvæmd boðaðri efnahagsumbótaáætlun forsetans.

Sarkozy virðist hafa ótvírætt umboð til að hrinda þessum áformum í framkvæmd. En þó gæti komið til mótmæla og verkfalla gangi hann of langt.

Fyrstu aðvörunarbjöllurnar hringdu með því að sósíalistar komu mun betur út úr síðari umferð þingkosninganna en búist hafði verið við, auk þess sem Alain Juppé, sem í raun var aðstoðarforsætisráðherra í ríkisstjórninni sem Sarkozy skipaði fyrir skemmstu, náði ekki inn á þing, sem kallar að öllum líkindum á snemmbúna uppstokkun í stjórninni. Juppé boðaði afsögn sína úr stjórninni.

Sarkozy staðfesti Francois Fillon í embætti forsætisráðherra á fundi í gær, daginn eftir að kosningunum lauk. En jafnvel strax í dag, þriðjudag, er búist við að hann muni tilkynna um allt að tíu nýja aðstoðarráðherra, þar á meðal nokkra úr herbúðum stjórnarandstöðunnar, í því skyni að endurspegla „fjölbreytileika" Frakklands. Þrátt fyrir óvænta velgengni vinstrimanna í mörgum kjördæmum stóð Sarkozy, sem tók við embætti 16. maí, uppi eftir þingkosningarnar sem mjög sterkur leiðtogi, með ríkisstjórn, þing og fleiri helstu stofnanir ríkisins örugglega í höndum flokksmanna sinna. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1978 sem kjósendur staðfestu í embætti sömu stjórn og sat að völdum síðastliðið kjörtímabil. Mun þessi staða auðvelda Sarkozy að hrinda umbótamálum sínum í framkvæmd.

UMP-flokkur Sarkozys fékk 345 af 577 sætum á þjóðþinginu, neðri deild Frakklandsþings. Á síðasta kjörtímabili hafði flokkurinn 359 þingmenn. Sósíalistar fengu 186 sæti og bandalag þeirra við fleiri vinstriflokka samtals 227 sæti, en það var talsvert meira en vænst hafði verið að þeir gætu náð í síðari umferð kosninganna.

Alain Juppé datt út af þingi og hættir í stjórninni.MYND/AP

Þrátt fyrir óvænta velgengni vinstrimanna í mörgum kjördæmum stóð Sarkozy, sem tók við embætti 16. maí, uppi eftir þingkosningarnar sem mjög sterkur leiðtogi, með ríkisstjórn, þing og fleiri helstu stofnanir ríkisins örugglega í höndum flokksmanna sinna. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1978 sem kjósendur staðfestu í embætti sömu stjórn og sat að völdum síðastliðið kjörtímabil. Mun þessi staða auðvelda Sarkozy að hrinda umbótamálum sínum í framkvæmd.

UMP-flokkur Sarkozys fékk 345 af 577 sætum á þjóðþinginu, neðri deild Frakklandsþings. Á síðasta kjörtímabili hafði flokkurinn 359 þingmenn. Sósíalistar fengu 186 sæti og bandalag þeirra við fleiri vinstriflokka samtals 227 sæti, en það var talsvert meira en vænst hafði verið að þeir gætu náð í síðari umferð kosninganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×