Erlent

Royal og Hollande að skilja

Samtvinnaður ferill Francois Hollande og Ségolène Royal á meðan allt lék í lyndi.
Samtvinnaður ferill Francois Hollande og Ségolène Royal á meðan allt lék í lyndi. MYND/AP

Leiðtogapar franskra sósíalista, Ségolène Royal og Francois Hollande, hefur ákveðið að skilja. Þau tilkynntu þetta á sunnudagskvöld, að kvöldi kjördags í síðari umferð þingkosninganna í landinu.

Royal var forsetaframbjóðandi Sósíalistaflokksins í forsetakosningunum í vor en Hollande er formaður flokksins. Hann þurfti stundum að verja flokkslínuna opinberlega gagnvart lífsförunautnum, sem fór stundum frjálslega með hana í kosningabaráttunni. Einkalíf þeirra og pólitískur frami hefur um langt árabil verið samtvinnað. Þau eiga fjögur börn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×