Erlent

Einangrun Palestínu aflétt

Fjöldi Palestínumanna á Gaza bíður við landamærin að Ísrael eftir að komast yfir á Vesturbakkann.
Fjöldi Palestínumanna á Gaza bíður við landamærin að Ísrael eftir að komast yfir á Vesturbakkann. MYND/nordicphotos/afp

Evrópusambandið og Bandaríkin gáfu í gær fyrirheit um að hefja á ný beinan efnahagsstuðning við Palestínu í kjölfar þess að forseti landsins, Mahmoud Abbas, skipaði nýja stjórn á sunnudaginn sem Hamas-samtökin eiga ekki aðild að.

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, hafði samband við nýjan forsætisráðherra Palestínu, Salam Fayyad, í gær og greindi honum frá því að Bandaríkin hefðu aflétt efnahagslegri og pólitískri einangrun Palestínu, skref sem ætlað er að styrkja hina nýju stjórn í sessi og stöðu Abbas.

Efnahagsaðstoð við Palestínu var hætt eftir að Hamas, sem ESB og Bandaríkin skilgreina sem hryðjuverkasamtök, vann óvæntan kosningasigur á Fatah-hreyfingunni fyrir rúmu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×