Richards ætlaði að taka nærbuxnafagnið með Ireland 9. nóvember 2007 10:36 NordicPhotos/GettyImages
Enski landsliðsmaðurinn Micah Richards hjá Manchester City segist vonsvikinn með þau neikvæðu viðbrögð sem ofurmennisnærbuxur Stephen Ireland fengu í vikunni. Ireland fagnaði sigurmarki sínu gegn Sunderland með því að leysa niður um sig stuttbuxurnar og sýna súpermannnærfötin sín. Richards heldur úti bloggi á heimasíðu breska sjónvarpsins og þar segir hann það miður hvað menn taki lífinu alvarlega í boltanum í dag. "Það var miður að sjá að fólk vildi sekta Stephen fyrir nærbuxnafagnið. Maður verður að fara svo varlega í dag og það er eins og menn séu að reyna að taka alla skemmtun úr því að fagna mörkum. Það er ekki eins og Stephen hafi verið nakinn eða eitthvað svoleiðis - ég sé bara ekkert að þessu," sagði Richards á bloggi sínu. "Ef ég á að vera hreinskilinn, átti ég meira að segja að taka þátt í þessu uppátæki með honum, því ég var með honum þegar hann keypti sér nærbuxurnar og við ætluðum að gera þetta saman. Ég var því miður meiddur - en slapp þá líka við þessa neikvæðni sem kom í kjölfar atviksins," sagði Richards og bætti við að Ireland ætti ekki skilið þá gagnrýni sem hann hefur fengið í blöðunum því hann sé bæði drengur góður og frábær knattspyrnumaður.
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira