Sigur skoskra þjóðernissinna 5. maí 2007 02:30 Miklar tafir urðu á talningu atkvæða víða í Bretlandi og allt að hundrað þúsund atkvæði voru úrskurðuð ógild.fréttablaðið/AP
Skoski þjóðernisflokkurinn SNP hrósaði sigri í Skotlandi og leiðtogi hans, Alex Salmond, gæti sem hægast orðið forsætisráðherra í nýrri stjórn skoska heimastjórnarþingsins. „Ég held að nú sé nýr dagur að rísa, ekki bara í Skotlandi heldur út um allt land,“ sagði Salmond ánægður með sigurinn. Hann vill efna til kosninga um sjálfstæði Skotlands árið 2010. Hvorki SNP né aðrir flokkar náðu þó hreinum meirihluta í Skotlandi. SNP fékk 47 þingsæti, aðeins einu fleira en Verkamannaflokkurinn sem fékk 46 þingsæti. Íhaldsflokkurinn kom í þriðja sæti með 17 þingsæti og síðan Frjálsir demókratar með 16 af alls 129 þingmönnum á þinginu. Í meira en hálfa öld hefur Verkamannaflokkurinn fengið flest atkvæði í öllum kosningum í Skotlandi, þannig að úrslitin þar eru nokkurt áfall fyrir flokkinn. Verkamannaflokkurinn tapaði sömuleiðis fylgi í Wales, þar sem einnig var kosið til heimastjórnarþings. Ennfremur varð tap Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningum um allt Bretland töluvert mikið, eins og búist var við. Tony Blair forsætisráðherra sagði úrslitin þó ekki jafn slæm fyrir Verkamannaflokkinn og spáð hafði verið fyrirfram. „Allir sögðu að við myndum fá mikið högg, þetta myndi verða algjör ósigur, en það fór ekki svo,“ sagði hann.- gb
Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Erlent Fleiri fréttir Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Sjá meira