Enski boltinn

Liverpool og Chelsea mætast

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steven Gerrard og Frank Lampard hafa oft mæst á vellinum.
Steven Gerrard og Frank Lampard hafa oft mæst á vellinum. Nordic Photos / Getty Images

Chelsea mun taka á móti Liverpool í fjórðungsúrslitum ensku deildabikarkeppninnar en dregið var í morgun.

Þessi lið hafa margoft mæst í öllum keppnum undanfarin ár og skyldi engan undra að liðin drógust saman. Þau mættust í úrslitum deildabikarkeppninnar árið 2005 þar sem Chelsea vann í framlengdum leik, 3-2.

Aðrir leikir:

West Ham - Everton

Manchester City - Tottenham Spurs

Blackburn - Arsenal

Allir leikir fara fram þann 17. desember nema leikur West Ham og Everton sem fer fram þann 10. desember. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×