Erlent

Herlið Dana á leið heim frá Írak

Síðustu dönsku hermennirnir halda heim frá Írak í dag, og lýkur þar með þáttöku Dana í hernaðaraðgerðum þar í landi. Sjö af átta herfylkjum danska hersins hafa verið kölluð heim en 110 hermenn bíða eftir að verða sóttir. Til stóð að þeir færu fyrr, en brottför þeirra seinkaði vegna bilunar í flugvél.  Breskur her mun taka yfir það svæði sem Danir hafa haft umsjón með.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×