Erlent

Dreymir um að keyra rútu

Forsætisráðherra eyríkisins Trínidad og Tóbagó í Karíbahafi segir sig alltaf hafa dreymt um að keyra rútu. Forsætisráðherrann trínidadíski, Patrick Manning, upplýsti um þennan draum sinn í ræðu meðal flokksfélaga.



„Ég veit ekki hvort ég hef sagt ykkur öllum leynda löngun sem ég hef, sem er að keyra rútu,“ sagði Manning. „Ég mun upplifa þennan draum áður en ég dey.“



Forstöðumaður samgöngufyrirtækis í landinu segir það taka Manning mánuð að fá nauðsynleg próf til að keyra rútu, þó að hann sé forsætisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×