Líbía fær ógrynnin öll fyrir fangana sex 27. júlí 2007 03:45 Frakklandsforseti heimsótti Líbíuleiðtoga nú í vikunni til að ganga frá samningum í kjölfar framsals búlgörsku fanganna. fréttablaðið/AFP
Bandaríkin, Evrópusambandið og Búlgaría stóðu árum saman í erfiðum en að mestu leynilegum samningaviðræðum við stjórn Moammars Gaddafi í Líbíu um örlög búlgörsku hjúkrunarfræðinganna fimm og palestínska læknisins, sem framseld voru til Búlgaríu í byrjun vikunnar. Skriður virðist þó ekki hafa komist á málin fyrr en eftir að Nicolas Sarkozy var kosinn Frakklandsforseti. Bæði hann og Cecilia eiginkona hans þykja hafa unnið nokkuð afrek með því að leiða málið til lykta. Í gær fordæmdu hins vegar ættingjar líbísku barnanna, sem smituðust af alnæmisveirunni fyrir tíu árum, ákvörðun forseta Búlgaríu um að náða hjúkrunarfólkið. Stjórnvöld í Líbíu komu sömuleiðis mótmælum á framfæri við sendiráð Búlgaríu í gær þar sem náðunin er sögð vera „brot á samkomulagi“ milli landanna, og kröfðust opinberrar skýringar. Boris Velchev, aðalsaksóknari í Búlgaríu, vísaði þessum mótmælum þegar í stað á bug og sagði ekkert athugavert við náðun fanganna. Margt hefur verið óljóst um samningana sem leiddu til þess að Líbía féllst á að framselja fangana til Búlgaríu en þau mál hafa þó verið að skýrast á síðustu dögum. Hjúkrunarfólkið var ekki framselt frá Líbíu til Búlgaríu fyrr en ættingjar barnanna, samtals 460 fjölskyldur, höfðu síðastliðinn sunnudag fengið greitt jafnvirði 60 milljóna króna hver, auk þess sem Evrópuríki höfðu veitt tryggingar fyrir því að börnin myndu hljóta viðeigandi læknismeðferð eftir því sem þörf krefur allt til æviloka. Ekki er vitað hvaðan peningarnir sem ættingjarnir fengu er komið, samtals 460 milljónir dala, en Sarkozy þykir hafa gefið ákveðna vísbendingu um það þegar hann hrósaði stjórnvöldum í Katar fyrir að hafa átt stóran þátt í að leysa málið. Á miðvikudaginn, þegar Sarkozy var í heimsókn hjá Gaddafi, voru undirritaðir samningar milli Frakklands og Líbíu um samstarf á fjölmörgum sviðum, meðal annars um kjarnorkuvinnslu. Evrópusambandið hefur einnig fallist á að veita Líbíu margvíslega aðstoð og bauð einnig aukin viðskiptatengsl. Þá sagðist Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætla að bregða sér til Líbíu á næstunni. „Ég veit að bandarísk fyrirtæki hafa mikinn áhuga á að starfa í Líbíu,“ sagði hún. Forsætisráðherra Búlgaríu, Sergei Stanishev, segir vel koma til greina að afskrifa allar skuldir Líbíu við Búlgaríu, en þær nema meira en sem svarar þremur milljörðum króna. Stanishev leggur þó mikla áherslu á að það yrði gert af mannúðarástæðum, en alls ekki megi líta á það sem „greiðslu lausnargjalds eða viðurkenningu á sekt“ hjúkrunarfólksins.
Mest lesið Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Innlent Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás Innlent Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Erlent Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Innlent Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Erlent Fleiri fréttir Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Sjá meira