Enski boltinn

Clattenburg vill vingast við Liverpool

Moyes er bálillur yfir mistökum dómarans um helgina
Moyes er bálillur yfir mistökum dómarans um helgina NordicPhotos/GettyImages

David Moyes, stjóri Everton, er enn bálreiður út í dómarann Mark Clattenburg eftir tapið fyrir Liverpool um helgina. Moyes segir Clattenburg hafa gert sig sekan um fáránleg mistök og segist ekki muni taka við afsökunarbeiðni frá honum þó hún stæði til boða.

Moes er enn reiður yfir því að Clattenburg skuli hafa gefið Liverpool tvær vítaspyrnur í grannaslagnum, en dæmdi ekki víti þegar Joleon Lescott var togaður niður í teignum hjá þeim rauðu undir lok leiksins. Clattenburg fyllti mælinn hjá Moyes með því að sleppa því að reka Dirk Kuyt af velli fyrir villta tæklingu hans á Phil Neville - en hikaði ekki þegar hann rak Tony Hibbert af velli fyrir brot á Steven Gerrard.

Liverpool varð fyrir dómaraklúðri í upphafi leiktíðar þegar Rob Styles gaf Chelsea glórulaust víti á Anfield, en hann hringdi þá sérstaklega í Rafa Benitez og bað hann afsökunar þegar hann sá að sér.

David Moyes á ekki von á að svipað verði uppi á teningnum hjá sér og setur spurningamerki við heilindi dómarans. "Rob Styles hringdi í Benitez og bað hann afsökunar, en ég hef ekki fengið slíkt símtal. Það skiptir heldur ekki máli, því ef Clattenburg myndi hringja í mig - myndi ég ekki svara honum," sagði Moyes.

"Maður spyr sig hvort þessir dómarar láta toppliðin fjögur virkilega hafa svona mikil áhrif á sig. Fór ekki Clattenburg til Hong Kong með Liverpool-liðinu í sumar - hann hlýtur að vilja vera vinur þeirra," sagði Moyes hundfúll og hélt áfram.

"Ég reyni eins og ég get að forðast að ræða dómara, en þessar ákvarðanir hans voru okkur mjög dýrar. Maður hefði horft framhjá því ef hann hefði klikkað á einu eða tveimur atriðum, en þetta voru stór klúður hjá honum. Hvernig í ósköpunum getur maður kallast hæfur dómari sem tekur ekki eftir því þegar Carragher togaði Lescott niður í teignum?"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×