Bellamy lamdi Riise með golfkylfu 17. febrúar 2007 23:21 Craig Bellamy hefur alla tíð verið mjög iðinn við að koma sér í vandræði utan vallar NordicPhotos/GettyImages
Norskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Craig Bellamy hafi lamið liðsfélaga sinn John Arne Riise ítrekað með golfkylfu á hóteli í Portúgal á föstudagskvöldið. Liverpool er nú í æfingabúðum þar í landi og er þetta ekki eina skrautlega uppákoman í ferðinni ef marka má fréttir úr bresku blöðunum. Riise er sagður hafa lagst til svefns á hótelherbergi sínu eftir að leikmennirnir fóru út á lífið á föstudagskvöldið, en skömmu síðar hafi Bellamy brotið þar upp hurðina og barið Riise ítrekað með golfkylfu. Fréttir herma að Riise sé blár og marinn eftir árásina. Sagt er að mál þetta muni verða efst á baugi í fjölmiðlum á Englandi á morgun, sunnudag. Þetta er ekki eina leiðindauppákoman úr herbúðum Liverpool úr æfingaferðinni, því sama kvöld greinir Daily Mail frá því að þeir Jerzy Dudek, Robbie Fowler og Jermaine Pennant hafi farið á mikið fyllerí og að í framhaldinu hafi þurft að kalla til lögreglu. Dudek á að hafa verið færður í handjárn af lögreglu. Ef eitthvað af þessum fréttum reynast sannar er ljóst að Rafa Benitez knattspyrnustjóri Liverpool hefur nóg að gera við að koma á aga í herbúðum sínum á næstu dögum - en það er nokkuð sem hann gæti vafalaust verið án á síðustu dögunum í undirbúningi fyrir Meistaradeildareinvígið við Evrópumeistara Barcelona í vikunni. Menn á borð við Craig Bellamy og Jermaine Pennant hafa enda verið undir smásjánni síðan þeir gengu í raðir Liverpool vegna ótal afbrota og asnastrika undanfarin ár og nú er bara að bíða og sjá hvað verður þegar málið verður rannsakað frekar.
Enski boltinn Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Fleiri fréttir Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Sjá meira