Erlent

Herja á býflugur í Frakklandi

Ógnvaldurinn. Þannig líta þeir út, geitungarnir sem hafa hreiðrað um sig í Suður-Frakklandi og gætu breiðst út víðar um Evrópu á næstu árum.
Ógnvaldurinn. Þannig líta þeir út, geitungarnir sem hafa hreiðrað um sig í Suður-Frakklandi og gætu breiðst út víðar um Evrópu á næstu árum. MYND/AP

Býflugur í Frakklandi eiga nú undir högg að sækja vegna geitunga sem þangað eru komnir frá Asíu.

Geitungarnir eru töluvert stærri en frændur þeirra í Evrópu og eiga því í engum vandræðum með að ráðast á grunlaus fórnarlömb sín. Þeir gera árásir á býflugnabúin, rífa af býflugunum hausinn, fálmarana og vængina og breyta þeim síðan í mauk sem drottningin og lirfur hennar nærast á.

Býflugurnar ætla þó ekki að deyja alveg ráðalausar. Þær hafa þegar fundið leið til að veita andspyrnu, einfaldlega með því að umkringja geitunginn og blaka vængjum sínum ótt og títt. Þannig mynda þær svo mikinn hita að geitungnum verður ólíft og hreinlega drepst.

Býflugnabændur hafa líka dottið niður á ráð til að verja sínar flugur. Þeir minnka opin á býflugnabúunum þannig að geitungarnir komist ekki inn.

Ekki þykir rétt að eyða öllum geitungum á svæðinu, líka evrópskum og frönskum heimageitungum sem valda ekki jafn miklum skaða.

Talið er að geitungarnir hafi komið til Frakklands árið 2004, en það ár fór kaupmaður nokkur til Yunnan-héraðs í Kína til að kaupa þar leirpotta undir bonsai-tré, sem hann selur í Frakklandi. Líklegt þykir að geitungarnir hafi komið með skipi sem flutti leirpottana til Frakklands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×