Herja á býflugur í Frakklandi 16. apríl 2007 03:00 Ógnvaldurinn. Þannig líta þeir út, geitungarnir sem hafa hreiðrað um sig í Suður-Frakklandi og gætu breiðst út víðar um Evrópu á næstu árum. MYND/AP
Býflugur í Frakklandi eiga nú undir högg að sækja vegna geitunga sem þangað eru komnir frá Asíu. Geitungarnir eru töluvert stærri en frændur þeirra í Evrópu og eiga því í engum vandræðum með að ráðast á grunlaus fórnarlömb sín. Þeir gera árásir á býflugnabúin, rífa af býflugunum hausinn, fálmarana og vængina og breyta þeim síðan í mauk sem drottningin og lirfur hennar nærast á. Býflugurnar ætla þó ekki að deyja alveg ráðalausar. Þær hafa þegar fundið leið til að veita andspyrnu, einfaldlega með því að umkringja geitunginn og blaka vængjum sínum ótt og títt. Þannig mynda þær svo mikinn hita að geitungnum verður ólíft og hreinlega drepst. Býflugnabændur hafa líka dottið niður á ráð til að verja sínar flugur. Þeir minnka opin á býflugnabúunum þannig að geitungarnir komist ekki inn. Ekki þykir rétt að eyða öllum geitungum á svæðinu, líka evrópskum og frönskum heimageitungum sem valda ekki jafn miklum skaða. Talið er að geitungarnir hafi komið til Frakklands árið 2004, en það ár fór kaupmaður nokkur til Yunnan-héraðs í Kína til að kaupa þar leirpotta undir bonsai-tré, sem hann selur í Frakklandi. Líklegt þykir að geitungarnir hafi komið með skipi sem flutti leirpottana til Frakklands.
Mest lesið Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Innlent Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Erlent Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Erlent Vatnsból hefðu verið í hættu ef vindáttin hefði verið önnur Innlent Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Erlent Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Innlent Fleiri fréttir Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Sjá meira