Samstjórn tekin við á Norður-Írlandi 9. maí 2007 05:15 Þeir voru glaðhlakkalegir við embættistökuna í Stormont-kastala í Belfast í gær, þeir Ian Paisley og Martin McGuinness. MYND/AP
Ian Paisley, leiðtogi sambandssinna sem varði áratugum af ævi sinni í baráttu gegn samvinnu við kaþólska minnihlutann á Norður-Írlandi, var í gær kjörinn til að fara fyrir nýrri heimastjórn og deila þar völdum með fyrrverandi fjendum sínum í Sinn Fein, flokki lýðveldissinna. Paisley, sem er leiðtogi Lýðræðisflokks sambandssinna, DUP, og Martin McGuinness, sem lengi var einn helsti forsprakki Írska lýðveldishersins, voru kjörnir mótatkvæðalaust til að fara fyrir tólf manna samstjórn hinna fyrrum fénda. Markar það mikil tímamót í sögu Norður-Írlands, eftir áratugalangt borgarastríð og pólitíska pattstöðu. Um 3.700 manns liggja í valnum eftir borgarastríðið. Paisley, sem er 81 árs að aldri, sór eið þar sem hann meðal annars hét því að eiga samstarf við kaþólska og ríkisstjórn Írlands, en hvoru tveggja hefði hinn róttæki mótmælendaprestur lengi lýst sem uppgjöf og svikum. Þá sór McGuinness, næstæðsti maður Sinn Fein, eið sem næstráðandi í heimastjórninni. McGuinness þurfti í eiðstaf sínum einnig að heita stuðningi við norður-írsku lögregluna og dómskerfi Bretlands, en hvort tveggja kom í áratugi ekki til greina fyrir Sinn Fein. Í kjölfarið sóru hinir ráðherrarnir tíu sína eiða, en ráðherrastólum er ráðstafað í samræmi við þingstyrk flokkanna. DPU-flokkur Paisleys fékk fimm, Sinn Fein fjóra, flokkur hófsamra sambandssinna í UUP tvo og hófsamir kaþólskir í Jafnaðar- og verkamannaflokknum einn. Þá héldu þeir hver á eftir öðrum ræður á tröppum Stormont-kastala, aðseturs norður-írska þingsins, Paisley, McGuinness og forsætisráðherrar Bretlands og Írlands, Tony Blair og Bertie Ahern. Blair, sem fastlega er búist við að muni síðar í vikunni tilkynna um afsögn sína úr embætti, sagði að Írland hefði mátt þola „aldir markaðar af átökum, harðræði og hatri“. Hann sagði að samstjórnin í Belfast byði upp á tækifæri til að „losna loksins úr þessum fjötrum sögunnar“.
Mest lesið Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Innlent Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Erlent Fleiri fréttir Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Sjá meira