Erlent

Samstjórn tekin við á Norður-Írlandi

Þeir voru glaðhlakkalegir við embættistökuna í Stormont-kastala í Belfast í gær, þeir Ian Paisley og Martin McGuinness.
Þeir voru glaðhlakkalegir við embættistökuna í Stormont-kastala í Belfast í gær, þeir Ian Paisley og Martin McGuinness. MYND/AP

Ian Paisley, leiðtogi sambandssinna sem varði áratugum af ævi sinni í baráttu gegn samvinnu við kaþólska minnihlutann á Norður-Írlandi, var í gær kjörinn til að fara fyrir nýrri heimastjórn og deila þar völdum með fyrrverandi fjendum sínum í Sinn Fein, flokki lýðveldissinna.

Paisley, sem er leiðtogi Lýðræðisflokks sambandssinna, DUP, og Martin McGuinness, sem lengi var einn helsti forsprakki Írska lýðveldishersins, voru kjörnir mótatkvæðalaust til að fara fyrir tólf manna samstjórn hinna fyrrum fénda. Markar það mikil tímamót í sögu Norður-Írlands, eftir áratugalangt borgarastríð og pólitíska pattstöðu. Um 3.700 manns liggja í valnum eftir borgarastríðið.

Paisley, sem er 81 árs að aldri, sór eið þar sem hann meðal annars hét því að eiga samstarf við kaþólska og ríkisstjórn Írlands, en hvoru tveggja hefði hinn róttæki mótmælendaprestur lengi lýst sem uppgjöf og svikum.

Þá sór McGuinness, næstæðsti maður Sinn Fein, eið sem næstráðandi í heimastjórninni. McGuinness þurfti í eiðstaf sínum einnig að heita stuðningi við norður-írsku lögregluna og dómskerfi Bretlands, en hvort tveggja kom í áratugi ekki til greina fyrir Sinn Fein.

Í kjölfarið sóru hinir ráðherrarnir tíu sína eiða, en ráðherrastólum er ráðstafað í samræmi við þingstyrk flokkanna. DPU-flokkur Paisleys fékk fimm, Sinn Fein fjóra, flokkur hófsamra sambandssinna í UUP tvo og hófsamir kaþólskir í Jafnaðar- og verkamannaflokknum einn.

Þá héldu þeir hver á eftir öðrum ræður á tröppum Stormont-kastala, aðseturs norður-írska þingsins, Paisley, McGuinness og forsætisráðherrar Bretlands og Írlands, Tony Blair og Bertie Ahern.

Blair, sem fastlega er búist við að muni síðar í vikunni tilkynna um afsögn sína úr embætti, sagði að Írland hefði mátt þola „aldir markaðar af átökum, harðræði og hatri“. Hann sagði að samstjórnin í Belfast byði upp á tækifæri til að „losna loksins úr þessum fjötrum sögunnar“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×