Erlent

Eitt síðasta embættisverkið

Chirac hneigir höfuðið við athöfn við sigurbogann í París.
Chirac hneigir höfuðið við athöfn við sigurbogann í París. MYND/AP

Jacques Chirac, fráfarandi forseti Frakklands, tók í gær þátt í hátíðahöldum í París í tilefni af 62 ára afmæli stríðslokanna í Evrópu. Þetta var í síðasta sinn sem franskur forseti með eigin minningar um stríðsárin fer fyrir hinni árlegu minningarathöfn.

Ný kynslóð tekur við forsetaembættinu í næstu viku, þegar Nicolas Sarkozy, sem er fæddur árið 1955, tekur við af Chirac.

Óeirðir í kjölfar sigurs Sarkozy í úrslitaumferð forsetakosninganna á sunnudag héldu áfram í fyrrinótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×