Erlent

Önnur handtaka í Noregi

Fertugur norskur ríkisborgari, sem upprunalega er frá Bosníu-Herzegovínu, var í gær handtekinn grunaður um stríðsglæpi í heimalandi sínu á árinu 1992. Norska lögreglan greindi frá þessu.

Þetta er önnur handtakan á meintum stríðsglæpamanni í Noregi á hálfum mánuði.

Sá sem handtekinn var í gær kom til Noregs ásamt fjölskyldu sinni árið 1993 og hlaut ríkisborgararétt árið 2001. Hann er grunaður um að hafa átt aðild að stríðsglæpum gegn Bosníu-Serbum á tímabilinu maí til september 1992.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×