Erlent

Blóm við bronshermanninn

Frá athöfninni við styttuna í gær.
Frá athöfninni við styttuna í gær. MYND/AP

Ráðherrar í ríkisstjórn Eistlands lögðu í gær, í tilefni af 62 ára afmæli stríðsloka í Evrópu, blómsveiga við „bronshermanninn“ svonefnda, umdeilda styttu af sovéskum hermanni sem flutt var frá torgi í miðborg Tallinn inn í hermannagrafreit í borginni.

Stjórnin batt vonir við að athöfnin gæti markað upphafið að sáttum milli Eista og rússneskumælandi minnihlutans í landinu, tíu dögum eftir að til óeirða kom vegna flutnings styttunnar.

Rússar álíta flutninginn móðgun við minningu hermannanna sem sigruðu heri Hitlers, en Eistar álíta styttuna frekar tákn um hálfrar aldar sovéskt hernám og ok Moskvuvaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×