Enski boltinn

Sagan ekki á bandi Tottenham

AFP

Ef tekið er mið af sögunni á Tottenham ekki mikla möguleika á að vinna granna sína í Arsenal í undanúrslitum enska deildarbikarsins, en liðin mætast í fyrri leik sínum á White Hart Lane annað kvöld. Tottenham hefur ekki unnið sigur í 15 leikjum gegn grönnum sínum.

Arsenal menn koma væntanlega fullir sjálfstraust inn í leikinn annað kvöld eftir að liðið lagði síðast Manchester United í deildinni með dramatískum hætti um helgina og var það fimmti sigur liðsins í röð. Tottenham hefur hinsvegar aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum og um síðustu helgi marði liðið jafntefli gegn Fulham sem pilaði nær helming leiksins manni færri.

Árangur Arsenal gegn Tottenham er afgerandi undanfarin ár, en hann er ekki síðri þegar kemur að leikjum þar sem mikið er undir. Arsenal hefur t.a.m. sigrað í fjórum af fimm undanúrslitaviðureignum erkifjendanna - árin 1968 og 1987 í deildarbikarnum og árin 1987 og 2001 í enska bikarnum. Eini sigur Tottenham kom í dramatískum undanúrslitaleik árið 1991 þar sem Paul Gascoigne tryggði Tottenham sigur með sögulegri frammstöðu.

Það eina sem þeir hvítklæddu geta huggað sig við er frábær frammistaða liðsins í bikarkeppnum á árinu, en liðið hefur unnið 10 af 11 bikarleikjum sínum í öllum keppnum og er taplaust til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×