Enski boltinn

Einvígi Davíðs og Golíats á Sýn í kvöld

Tekst Wycombe hið ómögulega í kvöld?
Tekst Wycombe hið ómögulega í kvöld? NordicPhotos/GettyImages
Síðari undanúrslitaleikur Chelsea og Wycombe í enska deildarbikarnum verður sýndur beint sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Öskubuskulið Wycombe náði 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli sínum og leitast við að gera hið ómögulega á Stamford Bridge í kvöld.

Claude Makelele kemur aftur inn í lið Chelsea eftir leikbann en þeir Arjen Robben, John Terry, Khalid Boulahrouz, Joe Cole og Wayne Bridge verða ekki með liðinu. Þeir Will Antwi og Matt Bloomfield snúa aftur úr meiðslum hjá Wycombe og Tommy Mooney verður með á ný eftir leikbann.

Líklegir leikmannahópar:

Chelsea: Cech, Hilario, Hedman, Cudicini, Ferreira, Geremi, Carvalho, Essien, A Cole, Diarra, Mikel, Lampard, Ballack, Makelele, Drogba, Shevchenko, Robben, Wright-Phillips, Kalou.

Wycombe: Batista, Palmer, Martin, Antwi, Williamson, Betsy, Oakes, Easter, Mooney, Bloomfield, Golbourne, Doherty, Stonebridge, Torres, Stockley, Anya, Young, Christon, Cadmore, Gregory



Fleiri fréttir

Sjá meira


×