Enski boltinn

Ramos tekinn við Tottenham

NordicPhotos/GettyImages

Juande Ramos var í kvöld ráðinn þjálfari Tottenham og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Lundúnafélagið. Hann hafði áður gert Sevilla að tvöföldum Evrópumeisturum félagsliða, en enska félagið keypti hann út úr samningi sínum í dag.

Ramos tekur við af Martin Jol sem rekinn var á fimmtudagskvöldið og segja enskir fjölmiðlar að hann muni fá allt að sex milljónir punda í árslaun hjá félaginu. Tottenham er líka sagt vera í viðræðum við Gus Poyet hjá Leeds um að gerast aðstoðarmaður Ramos hjá Spurs, en Ramos talar litla ensku.

Hann mun væntanlega stýra liði Tottenham í fyrsta sinn í bikarleik í næstu viku en verður meðal áhorfenda á morgun þegar liðið tekur á móti Blackburn í úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×