Ferguson vill að Mourinho verði áfram 12. janúar 2007 20:40 Ferguson og Mourinho hafa tekið nokkrar rimmur í gegn um tíðina, en bera virðingu fyrir hvor öðrum NordicPhotos/GettyImages
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist vonast til að keppinautur hans Jose Mourinho verði áfram við stjórnvölinn hjá Chelsea í ljósi þeirra frétta sem gengið hafa á Englandi í dag. Því er haldið fram að Mourinho hætti hjá Chelsea í vor. Þeir Ferguson og Mourinho hafa á tíðum verið litlir vinir, en þó bera þeir mikla virðingu hvor fyrir öðrum eins og sést á ummælum Alex Ferguson í kvöld. "Ég yrði vonsvikinn ef hann færi frá Chelsea. Ég hef notið samskipta við hann þegar við höfum átt fundi saman eftir leiki og hann er góður persónuleiki sem ég hef gaman af að keppa við," sagði Ferguson og bætti við að hann tæki fréttum af hugsanlegu brotthvarfi Mourinho með fyrirvara. "Því ætti Jose að vera að segja nokkrum manni frá fyrirætlunum sínum? Ekki myndi ég gera það, því þá þykjast allir vita hvað þú ætlar þér að gera í framtíðinni. Ég tek þessum tíðindum með miklum fyrirvara, enda hef ég fullt í fangið með að sjá til þess að ég sjálfur verði með atvinnu í maí," sagði Ferguson. Mourinho sjálfur fór undan í flæmingi þegar hann var spurður út í fréttirnar í dag og sagðist aðeins vera að hugsa um næsta leik. "Ég hef aðeins elskað Chelsea í tvö og hálft ár, en ég elska félagið. Ég vil alltaf vinna næsta leik og næsti leikur er við Wigan. Við verðum að gleyma slúðrinu og einbeita okkur að því að vinna. Það er auðvelt fyrir mig að ná mér í gírinn fyrir hvern einasta leik - því ég er alltaf í gírnum - alltaf tilbúinn í slaginn og ef við náum ekki hagstæðum úrslitum, verð ég enn grimmari í að sigra," sagði Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Íslenski boltinn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Enski boltinn Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Fótbolti Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Golf Sjáðu mark Gylfa frá miðju, Sigurjón stöðva KR og drama á Hlíðarenda Íslenski boltinn Orri Steinn fram úr Eiði Smára Fótbolti „Hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa“ Fótbolti „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Körfubolti „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Körfubolti „Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Alonso tekur við Chelsea Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina Heskey yngri tryggði City titil gegn United Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Benóný Breki fer á Wembley City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Birta mynd af „njósnara“ Southampton Carrick eigi skilið að fá starfið Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Munu mæla með því við Ratcliffe að ráða Carrick Sjá meira