Enski boltinn

Kewell vonast til að verða klár fyrir leikina gegn Barcelona

MYND/Reuters

Harry Kewell, hin meiðslum hráði leikmaður Liverpool vonast til að vera orðinn heill heilsu fyrir leikina gegn Barcelona í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Kewell hefur ekkert spilað á yfirstandandi leiktíð eftir að hann meiddist á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í fyrra.

Eftir því sem fram kemur á vef Sky-sjónvarpsstöðvarinnar er Kewell byrjaður að æfa aftur og hefur sett stefnuna á stórleikina gegn Barcelona. Fyrri leikur liðanna verður 21. febrúar á Nou Camp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×